Forsíða
jonas.is
02.09.2010
 

Fjölmiðill

Dags frá: (t.d. 01.01.1973)
//
Dags til: (t.d. 01.01.2001)
//
Leitarstrengur: (t.d. Hótel Holt)

Inniheldur ekki:

    2008-05-24 Punktar
    Verið hrædd við erlenda glæpaflokka
    Verið hrædd við erlenda glæpaflokka, segir embætti ríkislögreglustjórans í kranaviðtali í Fréttablaðinu. Reynir að sanna tilverurétt sinn. Um daginn sögðu hagsmunaaðilar: Verið hrædd við erlenda kjúklinga. Hræðsluáróður er vopn spunakarla í lífróðri hagsmunaaðila. Sigríður Björk Guðjónsdóttir, aðstoðarmaður ríkislögreglustjóra, segir, að erlendir glæpahópar hafi náð fótfestu. Ekki nefnir hún neitt dæmi því til stuðnings. Enda eru glæpir á Íslandi eins íslenzkir og þeir hafa verið. Ofbeldið er eins íslenzkt og það hefur verið. En embættið ver tilveru sína og segir: Verið þið hrædd.
  
 

Prentvæn útgáfa