|
|
2010-03-18 Punktar
Fjarveru fagnað
Ég fagna fjarveru grátkórsins frá samstarfsnefnd um kvótakerfið. Útvegsmenn hafa ekkert erindi í þeirri nefnd nema að þvælast fyrir. Ríkisstjórnin hefur lofað okkur fyrningu aflaheimila, svo að þjóðin nái kvótanum til baka. Því miður fokkaði Jón Bjarnason útvegsráðherra málinu upp með því að skipa vitlausa nefnd í málið. Hann er sjálfur grunsamlegur í málinu. Okkar vantar ekki sátt milli hagsmunaaðila, við höfum þjóðarsátt. Landssamband íslenzkra útvegsmanna er ekki og verður ekki aðili að slíkri sátt. Meðan félagsmenn þess gráta í einrúmi eru meiri líkur á, að nefndin komi sér að verki.
|
|
|