Forsíða
jonas.is
02.09.2010
 

Fjölmiðill

Dags frá: (t.d. 01.01.1973)
//
Dags til: (t.d. 01.01.2001)
//
Leitarstrengur: (t.d. Hótel Holt)

Inniheldur ekki:

    2010-03-18 Punktar
    Átjándu aldar útgáfuferli
    Hrunskýrsla sannleiksnefndarinnar er prentuð um helgar. Það segir allt, sem segja þarf um höfunda hennar. Plaggið er langt á eftir áætlun og samt bara prentað um helgar. Enda vita höfundarnir ekki, að komin er til sögunnar 21. öldin. Svona plögg upp á mörg bindi eru ekki lengur gefin út á prenti. Þau eru bara sett á vefinn. Útgáfa á vefnum gerir langt prentferli óþarft. Enga varðmenn þarf til að standa vörð dag og nótt um gám í Odda. Útgáfuferli skýrslunnar er bara rugl af hálfu höfundanna. Enda eru þeir átjándu aldar embættismenn einveldistímans, samanber Upplýsingalög Páls Hreinssonar.
  
 

Prentvæn útgáfa