Forsíða
jonas.is
02.09.2010
 

Fjölmiðill

Dags frá: (t.d. 01.01.1973)
//
Dags til: (t.d. 01.01.2001)
//
Leitarstrengur: (t.d. Hótel Holt)

Inniheldur ekki:

    2010-03-17 Punktar
    Íslandsbanki í stríð við þjóðina
    Að undirlagi Friðriks Sófussonar er Íslandsbanki farinn í stríð við stjórn landsins. Hún vill, að starf bankastjórans sé auglýst. Fyrra bankaráð hafði samþykkt það. Formaður nýja bankaráðsins segist ekki bundinn af því. Hann endurréð kúludrottningu bankans. Þar með er Íslandsbanki kominn í stríð við ríkisstjórnina. Og við þjóðina í leiðinni, því að almannavilji er fyrir auglýsingu mikilvægra starfa. Friðrik er dæmi um, að gamla Ísland spillingar er enn við völd í fjármálum landsins. Einkum í bönkum. Þeir hafa undanfarið grafið undan þjóðarviljanum með afturhvarfi til fyrra ógeðs í vinnubrögðum.
  
 

Prentvæn útgáfa