|
|
2010-03-17 Punktar
Oftraust á markaðsöflin
"Því miður hefur vantraust á markaðsöflin lengi verið landlægt í stjórnmálum á Íslandi." Segir Jón Steinsson, lektor við Columbia, í Fréttablaðinu í dag. Er kolrangt mat á sjónarmiðum landsmanna undanfarinn áratug. Þvert á móti ríkti tryllt oftrú á markaðinn. Keyrð fram af ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, hugmyndafræði frjálshyggju og hagsmunum bófa í bönkum og útrás. Ekki sízt lofsungu fjölmiðlar hana. Almenningur hreifst með oftrúnni á markaðsöflin, kaus vitleysuna ítrekað yfir sig. Þegar hagfræðingur fer síðan að tala um vantraust á markaðsöflin, lifir hann ekki í raunheimi. Þá missi ég trú á honum.
|
|
|