|
|
2010-03-17 Punktar
Ævisaga Sigmundar Davíðs
Sigmundur Davíð sakar blaðamenn um að vera erindreka stjórnvalda. Nefnir ekkert dæmi því til stuðnings, þótt skorað sé á hann. Auðvitað getur hann það ekki. Bullar bara út í loftið eins og hentar hverju sinni. Lýðskrumari fram í fingurgómana. Býr til sýndarveruleika, sem hann hrærist í. Þar að auki hvikull sem pólitíkus. Þykist taka þátt í samningum um IceSave, en grefur um leið undan því. Þar með seinkar hann gengislækkun og vaxtalækkun, sem mundu létta hag skuldara. Sigmundur Davíð er milljarðaerfingi. Faðir hans fékk ríkisfyrirtæki gefins og keypti fyrir hann formennsku í Framsókn.
|
|
|