Forsíða
jonas.is
02.09.2010
 

Fjölmiðill

Dags frá: (t.d. 01.01.1973)
//
Dags til: (t.d. 01.01.2001)
//
Leitarstrengur: (t.d. Hótel Holt)

Inniheldur ekki:

    2010-03-17 Punktar
    Finnur verði fjarlægður
    Ég vil, að Finnur Sveinbjörnsson verði tekinn með valdi úr Arion banka. Hann leyfir glæpamönnum að reka fyrirtæki, þótt þeir hafi valdið bankanum og þjóðinni tjóni upp á tugi og hundruð milljarða. Samt hafa þeir komið undan fasteignum og reiðufé. Þessi hegðun Finns er gersamlega út af kortinu. Gylfi Magnússon bankaráðherra gerir ekkert í þessu ofurhneyksli aldarinnar. Getur almenningur ekki bara farið í bankann og fjarlægt Finn úr stólunum? Þótt hann eigi að vera hættur starfi fyrir löngu, heldur hann áfram að ögra öllu siðferði viku eftir viku. Áhugi hans á endurvöktum bónusgreiðslum er í stíl.
  
 

Prentvæn útgáfa