|
|
2010-03-16 Punktar
Skilanefndir í gæzluvarðhald
Hræddur er ég um að senda verði lögregluna á skilanefndir og slitastjórnir gömlu bankanna. Koma þeim í gæzluvarðhald, meðan kannað er, hvort þær hafi samráð um að hilma yfir hundrað milljarða skattsvik. Ekki eitt einasta mál hefur borizt skattrannsóknastjóra úr gömlu bönkunum, þótt rökstuddur grunur sé um ferleg skattsvik. Skilanefndir og slitastjórnir hafa meira að segja tregðast við að afhenda gögn. Þannig er tregða þeirra komin yfir í meðsekt í svindlinu, í skjóli bankaleyndar. Ekki er lengur tími til að spekúlera um glæpi bankanna. Kominn er tími til rífa bankaleyndina og stinga mönnum inn.
|
|
|