Forsíða
jonas.is
02.09.2010
 

Fjölmiðill

Dags frá: (t.d. 01.01.1973)
//
Dags til: (t.d. 01.01.2001)
//
Leitarstrengur: (t.d. Hótel Holt)

Inniheldur ekki:

    2010-03-16 Punktar
    Orkuveitan sett í ruslflokk
    Lífeyrissjóðir eru sumir byrjaðir að átta sig. Þeir neita að kaupa pappíra Orkuveitu Reykjavíkur, telja það illa rekið fyrirtæki. Þurfum ekki erlend matsfyrirtæki til að setja það í ruslflokk. Lífeyrissjóðir hafa þegar gert það. Pappíra keyptu verst reknu sjóðirnir, Lífeyrissjóður verzlunarmanna og Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins. Orkuveitan reynir að fjármagna afgang af fyrra stórveldisæði sínu, fráveitur í hundrað kílómetra fjarlægð frá Reykjavík. Fimm milljarða vantar upp á, að það takist. Samt láta menn sig dreyma um, að fávitastofnun geti byggt orkuver fyrir stóriðju og gagnaver!
  
 

Prentvæn útgáfa