Forsíða
jonas.is
09.09.2010
 

Fjölmiðill

Dags frá: (t.d. 01.01.1973)
//
Dags til: (t.d. 01.01.2001)
//
Leitarstrengur: (t.d. Hótel Holt)

Inniheldur ekki:

    2010-03-10 Punktar
    Ríkisstjórnin semji ekki ein
    Geri ekki ráð fyrir, að Bretland og Holland vilji semja við ríkisstjórnina í IceSave án stjórnarandstöðunnar. Það þýðir bara eina hringferð enn í málinu og kannski nýtt þjóðaratkvæði. Mistakast munu tilraunir til að leysa málið þannig. Hins vegar er hugsanlegt að leysa málið án Framsóknarflokksins, sem hefur lýst andstöðu við samninga yfirleitt. Sjálfstæðisflokkurinn tvístígur. Hann bregzt ef til vill trausti sinna manna í samninganefndinni, Lee Bucheit formanns og Lárusar Blöndal. Freistandi er að fórna þeim til að grafa undan ríkisstjórninni. Þess vegna má ríkisstjórnin núna ekki fara fram úr sér.
  
 

Prentvæn útgáfa