|
|
2010-03-10 Punktar
Hópferð læmingja á kjörstað
Á Norðurlöndum þekkja ráðamenn Íslendinga og vilja láta okkur borga. Þeir furða sig á afneitun þjóðarinnar. Sem kaus yfir sig Davíð Oddsson og kennir síðan öllu öðru um eymd sína og volæði. "Þið gerðuð þessa tilraun", segja skandínavar. Ekki bætir úr skák, að tækifærissinninn á Bessastöðum kastar skít í þá. Hann er tvíefldur af þjóðrembu í kjölfar hópferðar læmingjanna á kjörstað á laugardaginn. Þjóðin hættir ekki að rugla í kross, fyrr en hún er búin að gera sig gjaldþrota. Enda eru menn farnir í Evrópusambandinu að ræða um, hvort rétt sé að neita að tala við þjóð, sem er farlama af þjóðrembu.
|
|
|