|
|
2010-03-09 Punktar
Þjóðremba yfir-lýðskrumararns
Forseti Íslands elur á þjóðrembunni, sem er helzta næring kjósenda um þessar mundir. Hann kennir einkum Norðurlöndum um ófarir okkar. Þegar hann skammar þau, er hann fyrst og fremst að nærast á óseðjandi þjóðrembu innanlands. Hann er í rauninni að tala til Íslendinga, þjóðar, sem getur ekki stjórnað sjálfri sér. Hún fagnar því öllum færum á að kenna öðrum um ófarir sínar. Ráðamenn Norðurlanda þekkja Íslendinga of vel til að mylja meira undir okkur en þegar hefur verið gert. Norðurlönd eru ekki skyldug til að gefa Íslandi peninga og þiggja að launum skítkast frá yfir-lýðskrumara Íslands.
|
|
|