|
|
2010-03-09 Punktar
Blaðurfulltrúi atvinnurekenda
Ég er gáttaður á framgöngu Gylfa Arnbjörnssonar. Hef að vísu lengi vitað, að hann er blaðurfulltrúi atvinnurekenda. En hann fer bara alls ekki leynt með það. Fremsta áhugamál hans er að losna við ríkisstjórnina. Hann kennir henni um allt sem aflaga fer, líka um utanaðkomandi vandamál. Veit, að of lítið lánsfé veldur litlum framkvæmdum og minni atvinnu en ella. Veit, að það stafar af biðstöðu í IceSave. Samt knýr hann ekki á andstöðuna á Alþingi um að hleypa málinu fram. Heldur nöldrar um aðgerðarleysi stjórnarinnar. Um áhuga hennar á umhverfisvernd. Allt hans tal er úr hjarta frjálshyggjunnar.
|
|
|