|
|
2010-02-03 Punktar
IceSave drottning á Alþingi
Í pistli í gær taldi ég upp helminginn af þingmönnum Sjálfstæðisflokksins, sem komu að hruninu. Voru þar gerendur. Nú hefur flokkurinn bætt um betur. Á þing er komin varaþingmaðurinn Erla Ósk Ásgeirsdóttir. Hana má kalla IceSave drottningu. Vann á græðgistímanum við að ginna Breta og Hollendinga til að leggja fé í IceSave. Ég vona sannarlega, að Erla Ósk sýni ekki á þingi sama dugnað við rangindi og hún sýndi þá. Er hún var í fylkingarbrjósti IceSave-brasks einkavinavædda Landsbankans. Hún er ný sönnun þess, að þingflokkur sjálfstæðismanna er hluti af hruninu. Að hann er sjálfur Hrunflokkurinn.
|
|
|