|
|
2010-01-16 Punktar
Icesave-karl á ofurlaunum
Baldvin Valtýsson stjórnaði útibúi Landsbankans í London og sá um markaðsmál fyrir IceSave. Er meðsekur í einna alvarlegustu fjárglæfrum Íslandssögunnar. Samt er enn völlur á Baldvin, enda enn á ofurlaunum. Nú er það skilanefnd Landsbankans, sem borgar brúsann. Eins og margir sjúklingar græðgistímans hefur skilanefndin tröllatrú á fjárglæframönnum. Slíkir sjúklingar halda, að menn fortíðarinnar séu allra hæfastir til að hreinsa upp eftir sjálfa sig. Og hæfastir til að stjórna Seðlabankanum og Bankasýslunni. Gamla svínaríið er enn á fullu í fjármálaheiminum og getur riðið ríkisstjórninni að fullu.
|
|
|