|
|
2009-12-10 Punktar
Stefán smíði kirkjuna
Stefán Pálsson herstöðvaandstæðingur fer rangt með, þegar hann segir kristna Kopta fá að byggja kirkjur í Egyptalandi. Leitaðu Stefán á Google að "egypt koptic church building permit". Reyndu svo að reisa þar kirkju. Koptar eiga þvert á móti afar erfitt með að fá slík leyfi. Ríkið skammtar örfá leyfi til kirkjubygginga, seint og illa. Þau nægja ekki til að leysa af hólmi kirkjur, sem hrynja eða eru rifnar til að rýma fyrir nýjum húsum. Ennfremur brennir fólk og rífur nýbyggðar kirkjur. Samt er Kopta-kristni frumtrú í landinu. Útilokað er fyrir aðra kristna söfnuði að fá að byggja kirkjur þar í landi.
|
|
|