|
|
2009-11-08 Punktar
Stokkhólms-heilkenni Lorange
Vinur minn Jón Baldur Lorange hefur Stokkhólms-heilkenni. Er á Moggablogginu og líður illa. Lýsti í bloggi sínu, hvernig Mogginn hossar sumum bloggurum og situr þungt á öðrum. Birti tölfræði því til sönnunar. Þekktir bullukollar fá um og yfir 30% athygli Moggans. Meðan viti bornir bloggarar eins og Jón sjálfur og Lára Hanna Einarsdóttir fá bara 8% athygli. Ekkert af þessu felur í sér neinar fréttir. Það eina sniðuga og skemmtilega við þetta er, að Jón Baldur Lorange heldur áfram að vera á Moggablogginu. Þótt hann eigi að vita sem kerfisfræðingur, að margir pólitískt óháðir bjóða ókeypis bloggvistun.
|
|
|