Forsíða
jonas.is
02.09.2010
 

Fjölmiðill

Dags frá: (t.d. 01.01.1973)
//
Dags til: (t.d. 01.01.2001)
//
Leitarstrengur: (t.d. Hótel Holt)

Inniheldur ekki:

    2008-09-29 Punktar
    Pilsfalda-þjóðnýting
    Glitnir hefði rúllað í þessari viku, ef ríkið hefði ekki bjargað bankanum. Það þýðir, að félagið er gjaldþrota og stjórnendur hans eru verðlausir. Samt ætlar ríkið að borga fyrir hlutaféð og verðlauna stjóra á ofurlaunum. Slá til riddara bankastjórann með 27 milljón króna mánaðarlaun. Allt þetta mál er snargalið. Ríkið átti að hirða hræið frítt og reka hálfvitana strax. Í staðinn eru 84 milljarðar króna lagðir á herðar skattgreiðenda næstu ára. Börn okkar þurfa að borga 84 milljarða fyrir rugl Glitnis. Eiga samt eftir að skera aðra banka niður úr snörunni. Þetta heitir pilsfalda-þjóðnýting.
  
 

Prentvæn útgáfa