Lausn fangelsismála

Punktar

Aðgerðaleysi kerfisins í fangelsum er út í hött. Hundruð dæmdra manna ganga laus vegna plássleysis. Á sama tíma undirbýr kerfið hönnun fangelsis, sem verður komið í gagnið eftir þrjú ár í fyrsta lagi. Fram að þeim tíma verður langi halinn óleystur. Og ekki farið að gera ráð fyrir neinum fjármálabófum. Margir hafa bent á aðrar lausnir, til dæmis leigu á fangelsi erlendis. Ég hef bent á leigu á fangaskipi. Skip eða erlent fangelsi, sem rúmar hundrað fanga, tæki kúfinn af biðlistanum og væri tilbúið fyrir straum fjármálabófa. En kerfið skilur bara dýra steypu, enda ófært um að hugsa út fyrir rammann.