Varnir Evrópu gegn fjármálahruni byggjast enn á þjóðnýtingu taps bankanna. Angela Merkel Þýzkalandskanzlari og François Hollande Frakklandsforseti eru komin á spönsku línuna frá Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar. Vill taka seðlabankavaldið frá aðildarríkjunum, svo að evrópskur alvöru-seðlabanki sé að baki evrunnar. Að öðrum kosti fái evran ekki staðizt áhlaup markaðarins. Hagsmunir hans eru, að Þýzkaland bjargi spænsku bönkunum. Útvíkkuð hugmynd Hollande um evrópskt bankabandalag. Merkel vill þá í viðbót miðstýringu fjármála Evrópu. Betra væri að leyfa illa reknum bönkum að rúlla á hausinn.
