Látið Björgólf borga

Punktar

Áður en reikningurinn fyrir IceSave verður sendur skattgreiðendum verða menn að muna eftir eigendum bankans. Einkum Björgólfi Thor Björgólfssyni, sem lét skafa bankann innan fyrir sig. Og notaði auðvitað féð, sem bankinn laug út úr brezkum gamalmennum og öryrkjum. Skilanefnd og slitastjórn Landsbankans ættu raunar að vera búnar að senda Björgólfi Thor pro forma reikning. Fyrir fimmtíu milljörðunum, sem IceSave virðist ætla að kosta. Ósiðlegt eru, að bankabófarnir komist upp með að slíta sundur lán og skuldbindingar. Með því að skjóta verðlausum fyrirtækjum þar inn á milli. Látið Björgólf því borga.