Langþreyttur á kvótagreifum

Punktar

Nokkrir verkalýðsleiðtogar “eru orðnir langþreyttir á að vera hafðir að ginningarfíflum”. Svo notað sé orðaval Guðmundar Gunnarssonar, formanns Rafiðnaðarsambandsins. Er ósáttur við, að Landssamband útvegsmanna misnoti aðild sína að kjaraviðræðum. Heimtar, að það verði ekki inni í herberginu, annars setjist verkalýðsmenn ekki niður. Þetta er kjarni málsins. Samtök atvinnulífsins hafa leyft kvótagreifum að taka kjarasamninga í gíslingu. En því miður er ekki nein lausn á því önnur en að fara í hart. Verkföll eru það eina, sem getur opnað augu atvinnurekenda fyrir alvöru málsins.