Landsfundur firringar

Punktar

Á Landsfundinum límdi Sjálfstæðisflokkurinn sig við Davíð Oddsson og Geir H. Haarde. Við heimsins versta seðlabankastjóra og versta forsætisráðherra Íslandssögunnar. Flokkurinn tekur alls enga ábyrgð á hruninu og biðst engrar afsökunar á tilvist sinni. Heldur áfram að þjónusta kvótagreifa og aðra þá, sem fá auðlindir þjóðarinnar gefins. Vill lækka skatta á auðrónum og auka misrétti sem aldrei fyrr. 1600 fulltrúar firringar og heimsku staðfestu þessa stefnu á landsfundi. Allir afneita þeir fortíðinni og telja hrunið hafa byrjað með falli Davíðs og Geirs. Forstokkaðri geta fífl ekki orðið.