Lækkun vaxta og hækkun vaxtabóta eru réttu leiðirnar. Kosta að vísu samtals 26 milljarða, sem verða tap lánastofnana. Bankar geta svo til viðbótar gert samninga um færslu lána niður í 110% skuld til að minnka fyrirsjáanlegt tjón sitt af gjaldþroti fólks. Það geta Íbúðalánasjóður og lífeyrissjóðir hins vegar ekki, því að ríkissjóður leggur ekki tjónið á skattgreiðendur. Þeir hafa þegar axlað nóg. Hagsmunasamtök óráðsíumanna taka því illa, enda verja þau hagsmuni miðstétta. Rökin um, að afsláttur lána auki veltu, hafa ekki vægi. Við búum í þjóðfélagi, þar sem aukin velta er vond, kostar gjaldeyri.