Lækjartorg er bílaplan

Punktar

Í morgun var búið að breyta Lækjartorgi í bílaplan að ítölskum hætti. Gaman að sjá, hversu fljótir Íslendingar eru að þrífa alla hendina, sé þeim réttur litli fingur. Skortur eftirlits og viðurlaga er höfuðeinkenni hins opinbera. Breyttist ekkert við hrunið. Íslendingar eru sjálfs síns kotbændur í sínum Sumarhúsum og beygja sig ekki ótilneyddir undir þarfir samfélags. Og úr því að ég er farinn að skrifa um eftirlit og viðurlög: Af hverju er ekki búið að reka forstjóra Umhverfisstofnunar, 75 manna apparats, sem hefur gert algert aðgerðaleysi að listgrein. Díoxín, flúor, brennisteinn; nefnið það bara.