Grátkór kvótakónga reynir að hindra framgang stefnu ríkisstjórnarinnar og þjóðarinnar í kvótanum. Þjóðin á kvótann og vill endurheimta hann úr klóm kvótagreifa. Þeir veðsettu kvótann og hann getur því runnið til ríkisins. Ríkisstjórnin á að heimta útgerðarveðin úr höndum bankanna á móti framlögum ríkisins til bankanna. Kvótagreifarnir þæfast fyrir, neita til skiptis að mæta á fundi og heimta meiri samráðstíma. Reyna að drepa málinu á dreif. Vandinn felst í mistökum Jóns Bjarnasonar sjávarútvegsráðherra, sem bauð afætunum upp á viðræður. Þær eru bara tímaeyðsla. Afæturnar tefja tímann.
