Kvótagreifar frömdu landráð

Punktar

Kvótagreifarnir rændu auðlind hafsins af þjóðinni og veðsettu hana erlendum aðilum. Ef það eru ekki landráð, veit ég ekki, hvað eru landráð. Þeir geta ekki greitt skuldir sínar. Ríkið þarf að grípa í taumana og leysa til sín allan kvóta hafsins. Það má ekki afhenda kvótann aftur í hendur greifanna. Ríkið verður framvegis að leigja út kvótann og nota leiguna til að greiða niður kostnað sinn við að kaupa kvótann. Þjóðin var einu sinni höfð að fífli í kvótamálinu. Það má aldrei aftur gerast. Ein landráð eru alveg nóg. Til þess er bitur reynzla að læra af henni.