Kúgaðir verkalýðsrekendur

Punktar

Landssamtök kvótagreifa og Samtök atvinnulífsins stjórna ferli kjaramála. Alþýðusambandið mótmælir ferðalaginu annan daginn og tekur hinn daginn undir árásir umboðsmanna kvótagreifa á ríkisstjórnina. Orðið Verkalýðsrekendur er góð lýsing á stuðningi Alþýðusambandsins við stýringu atvinnurekenda á gangi kjaraviðræðna. Ég veit stundum ekki, hvort Vilhjálmur Egilsson eða Gylfi Arnbjörnsson hefur orðið. Líklega eru þeir einn og sami maðurinn í ýmsum gervum. Lífskjör almennings hafa verið tekin í gíslingu. Það er afrek, sem aldrei hefði tekizt nema fyrir stuðning verkalýðsrekenda við kvótagreifana.