Krimmarnir verðlaunaðir

Punktar

Fáránlegt er, að Halldór J. Kristjánsson og Sigurjón Þ. Árnason séu áfram bankastjórar Landsbankans. Eins ótrúverðugt og að Lárus Welding sé áfram bankastjóri Glitnis. Þessir þrír menn hafa spilað rassinn úr þjóðarbuxunum, eiga ekki að koma nálægt bönkum. Fjármálaeftirlitið er búið vanhæfu fólki, sem réð þessa krimma í nótt. Það boðar ekkert gott um framvindu hinnar nýju Eysteinsku hér á landi. Nýja stjóra þarf til að efla traust heimamanna og útlendinga á bönkunum. Svo sem einhverja þeirra, er hafa lengi gagnrýnt rekstur bankanna. Alls ekki krimmana, sem veðsettu þjóðina fyrir IceSave.