Kosturinn við nei-ið

Punktar

Einn helzti kosturinn við nei-ið er, að það hindrar framvindu ráðagerða um að liðka fyrir kjarasamningum. Norræni og evrópski fjárfestingarsjóðurinn verða áfram lokaðir. Lánshæfismat lækkar og skuldatryggingaálag snarhækkar á lánum frjálsa markaðarins. Ekkert álver í Helguvík. Orkufyrirtækin hafa of litla orku og geta ekki fjármagnað viðbótarorku. Búðarháls er fyrir bí. Það er gott. Þjóðin venur sig á að lifa á eigin vinnu. Og venur sig af að lifa á erlendum lánum. Fylgikvillinn er sá helztur, að upp hefst gamli söngurinn um þjóðnýtingu lífeyrissjóða. Því að þeir neita að fjármagna nánast vaxtafrítt.