Kostur að vera óreyndur

Punktar

Gunnar Schram og Þorsteinn Thorarensen áttu erfið samskipti við stjórn Vísis 1966. Fóru sínu fram eftir eigin höfði. Ég var sjálfur utangarðs í deilunum, talaði ekki við neinn stjórnarmann. Að lokum var ákveðið um sumarið að ýta þeim út. Sigfús Bjarnason í Heklu bankaði upp á hjá mér klukkan sex að morgni. Við fórum í morgunkaffi á Hótel Loftleiðir. Hann vildi mig sem ritstjóra. Ég sá á því öll tormerki, ég væri of ungur og óreyndur. Hefði mest lagt fyrir mig tæknileg atriði. Sigfús hló og sagði, að það væri einmitt kosturinn við mig. (Úr bókinni: Jónas Kristjánsson: Frjáls og Óháður, 2009)