Kosið um kosti í stjórnarskrá

Punktar

Sú nefnd stjórnlagaráðs, sem fjallar um þjóðkirkjuna, klofnaði í tvo jafna hluta. Helmingurinn vill ekki ákvæði um hana í stjórnarskrá og fer þannig að vilja þjóðfundarins. Hinn helmingurinn vill óbreytt ástand eða lítið frávik. Það eru Þorvaldur Gylfason, Dögg Harðardóttir, Arnfríður Guðmundsdóttir og Örn Bárður Jónsson, sem vilja bregðast þjóðfundinum. Ástæðulaust er að eyða miklum tíma í svona þras. Ég lagði ítrekað til fyrir löngu, að slíkar deilur verði leystar með því að búa til tvenns konar orðalag. Kosið verði milli tveggja möguleika í nokkrum atriðum í þjóðaratkvæðinu um nýja stjórnarskrá.