Konan með kassann

Greinar

Gunnar Böðvarsson verkfræðingur hefur rétt fyrir sér í skýrslunni um Kröfluvirkjun, þar sem hann segir, að nú verði að sigla milli skers og báru. Hann bendir á tvær andstæður: “Tæknilega séð væri mjög æskilegt að gera hlé á meiri háttar vinnsluborunum þar til gefizt hefur nægilegt tóm til að endurskoða og endurskipuleggja þær aðferðir og þá tækni, sem notuð hefur verið . Þá er og skjálfta- og eldvirkni svæðisins enn í hámarki og gefur það fullt tilefni til frekari gætni.

Á hinn bóginn er virkjunarsamstæðan þegar fullgerð og tilbúin til reksturs. Af fjárhagslegum og samfélagslegum ástæðum er jafnknýjandi nauðsyn að koma henni í gagnið …”

Gunnar leggur til á þessum grundvelli að áfram verði borað á Kröflusvæðinu um leið og reynt verði að lagfæra eldri holur og bæta borunartæknina.

Gunnar vill láta bora eina eða fleiri holur í efra kerfi Kröflusvæðisins nálægt skiljustöðvarhúsi í þeirri von, að unnt verði að gangsetja Kröfluvirkjun með virku 10 Mw afli, ef minnkun komi fram í holum 7 og 11, sem raunin hefur orðið á. Þetta er fyrsta tillaga Gunnars.

Gunnar vill líka láta bora eina könnunarholu í suðurhlíðum Kröflufjalls með svipuðum aðferðum og áður hafa verið notaðar. Þetta er fimmta tillaga hans.

Önnur til fjórða tillaga Gunnars fjalla um endurrannsókn á svæðinu, hreinsun, endurfóðrun og dýpkun á eldri bolum, svo og endurhönnun borhola og tækjakaup, svo að bora megi niður í þriggja kílómetra dýpi og fóðra niður í 1,5 kílómetra dýpi.

Tvær síðustu tillögur Gunnars fjalla svo um síðari djúpborun á Leirbotnasvæði með nýrri tækni og um athugun á Hvíthólasvæði, þegar og ef frekari neikvæð merki hafa komið fram á Leirbotnasvæði.

Nýjar tillögur Orkustofnunar eru að verulegu leyti í samræmi við tillögur Gunnars, að öðru leyti en því, að stofnunin er svartsýnni á aðgerðir á eldri holum og bjartsýnni á frekari boranir á nýjum svæðum. Vill Orkustofnun bora tvær holur í suðurhlíðum Kröflu, auk þess sem reynt verði að laga gömlu holurnar.

Orkustofnun telur ekki ástæðu “til að ætla annað en að finna megi betri gufuvinnslueiginleika á öðrum hlutum Kröflusvæðisins. Það verður að leita að þeim. Það verður einungis gert með frekari borunum … “

Ríkisstjórnin hefur lagzt á tillögur Gunnars Böðvarssonar og Orkustofnunar um frekari boranir. Hún hefur aðeins fallizt á tillögurnar um endurvinnslu gömlu holanna og hyggst verja til þess 100 milljónum króna. Það er lítil upphæð miðað við 10.000 milljón króna Kröfluævintýri.

Ríkisstjórnin hefur tvö undanfarin ár haft ýmis tækifæri til að hætta við Kröfluvirkjun, áður en kostnaðurinn var kominn upp í 10.000 milljónir. Nú er hins vegar nokkuð seint að æðrast. Ekki mundi það segja mikið í sukkið, þótt boraðar yrðu tvær til þrjár holur á nýjum svæðum á árinu, svona upp á vonina.

En kannski hefur konan með kassann sannfært ríkisstjórnina um, að endurvinnslan mundi lukkast!

Jónas Kristjánsson

Dagblaðið