Ef Indlandi og Kína heldur áfram að ganga vel, fer fólk þar að hafa ráð á að fara í flugferð og kaupa bíl. Þar með fýkur vonin um, að núverandi aðgerðir hindri ragnarök umhverfisins. Hagkerfi vesturlanda er alls ekki sjálfbært og þolir ekki tvo milljarða manna til viðbótar. Á næstu árum má búast við auknum sönnunargögnum um hnignun vistkerfis mannsins. Um það bil sem trúarofstækis-maðurinn George W. Bush lætur af forsetaembætti, verður orðið of seint að grípa til aðgerða, sem duga til verndunar umhverfisins. Indverjar og Kínverjar taka þær ekki á sínar herðar.
