Ég sé engar líkur á hreyfingu á IceSave máli fyrr en eftir þjóðaratkvæði. Brown og Balkenende gefa ekkert eftir. Ég sé ekki heldur neinar líkur á, að nýju lögin um IceSave verði staðfest í kosningunni. Þá fyrst kemur upp ný staða. Hún verður ömurleg fyrst. Núllpunktur. En þá fyrst standa erlendir aðilar andspænis þeim gerða hlut. Þá er hægt að biðja um milligöngu fjölþjóðlegra stofnana, Alþjóða gjaldeyrissjóðsins og Evrópusambandsins. Þá er hægt að biðja um afslátt af IceSave. Eins og áður mun klukkan ganga á okkur með rosatjóni frá degi til dags. Við því er ekkert að gera, þjóðin vill hafa það svoleiðis.
