Kjósendur eru vandamálið

Punktar

Klúðrið er kjósendum að kenna. Kusu þingmenn, sem kusu landskjörstjórn, sem klúðraði stjórnlagaþingi. Einnig klúðruðu þingmenn talningarkerfi þingsins. Líka þeir, sem haga sér eins og illa uppdregnir morfís-drengir í hálftíma hálfvitanna. Kjósendur klúðra öllu, sem þeir koma nálægt, hvort sem er í þingkosningum eða þjóðaratkvæðagreiðslum. Þjóðin er ófær um reka eigið samfélag. Bezta dæmið er Flokkurinn. Grímulaust valdatæki kvótagreifa og annarra þrælahaldara. Rekinn á kostnað kvótagreifa. Með málgagn á kostnað kvótagreifanna. Of stór hluti þjóðarinnar styður þennan augljósa viðbjóð.