Menn komast upp með kjaftæði í allri umræðu hér á landi. Geir Haarde ver sölu varnarliðseigna á vegum sjálfstæðismanna með því að segja þá vera góða menn. Það var ekki verið að fjalla um það, heldur um að farið sé eftir leikreglum. Efasemdum er útrýmt með góðum siðum, en ekki með blaðri. “Þið eigið að treysta mér” dugar ekki sem röksemd. Til eru vestrænar reglur um meðferð mála og það á að fara eftir þeim. Annað dæmi: Sýslumaðurinn á Selfossi gleymdi að tilkynna mál til Leifsstöðvar og missti farbanning úr landi. Í stað þess að biðjast afsökunar fer sýslumaðurinn áfram með vaðal.
