Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri er kominn í eltingaleik við Jón Jósef Bjarnason. Þann sem gerði forritið um tengsl fjármagns og ofurfólks í viðskiptum, byggt á fyrirtækjaskrá. Skúli segir hann grunaðan um að hafa tekið bannaðar upplýsingar hjá embættinu og ekki hafa skilað ársreikningi. Það síðara er dæmigerður tittlingaskítur. Sigrún Jóhannesdóttir, forstjóri Persónuverndar, reynir líka að hindra Jón Jósef í að safna upplýsingunum, sem hafa nýtzt Fjármálaeftirlitinu. Ástæða er til að ætla, að kerfið sé að reyna að stemma stigu við óæskilegum fréttum af tenglsnetum ofurskúrkanna.