Kennslustund í hagfræði

Punktar

Arion-banki stjórnaði útþenslu N1, sem er komið á hausinn. N1 fékk peninga bankans til að ryðja samkeppni úr vegi og koma upp einokun. Þetta var svo dýrt, að N1 skuldar 53 milljarða. Þar af á að afskrifa 35 milljarða. Nýtt félag fær svo að halda áfram þeirri einokun, sem gamla félagið hafði náð. Verðlagið hjá N1 verður áfram í skýjunum. Þá verður Hermann Guðmundsson áfram forstjóri. Hann er talinn svo góður í að reka einokun! Þannig hefur Arion-banki rústað samkeppni á stóru sviði í atvinnulífinu. Pungað tugum milljarða í tóma vitleysu. Og verndað gæludýrið sitt, ruglaða forstjórann.