Ögmundur þvoði ríkislögreglustjóra að hætti katta. Komst að raun um, að ekki væri ólöglegt að kaupa löggutæki af löggufyrirtækjum án útboðs. Þótt tækin hafi verið allt að nífalt dýrari en á almennum markaði. Svo sem sjá má af heimasíðum framleiðenda. Til að róa almenning bætir Ögmundur Jónasson við yfirlýsingu um bætt regluverk í framtíðinni. Í framtíðinni. Málið má skoða í því ljósi, að hann var formaður félags ríkiskontórista og gætti hagsmuna þeirra. Enn er hann að gæta hagsmuna kontórista, skrautlega borðalagðra sem annarra. Því hefur hann tekið ríkislögreglustjóra undir verndarvæng sinn.