Hjarta Katrínar Júlíusdóttur slær með stóriðjubófum eins og hjarta Árna Páls Árnasonar slær með bankabófum. Þetta eru tveir ráðherrar hrunverja í stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur. Hún þarf að ná betri aga á þeim. Árni gefur úr skjöl Samtaka fjármálafyrirtækja sem skjöl bankaráðuneytisins. Katrín Júlíusdóttir hefur með brögðum bolað fulltrúum náttúruverndarsamtaka frá ákvörðunum um orkuver og verndunarsvæði. Hefur flutt þær frá verkefnisstjórn rammaáætlunar til nefndar í iðnaðarráðuneytinu. Getur þar hossað sérhagsmunum á kostnað almannahagsmuna að vild. Braut þar með samkomulag um rammaáætlun orkumála.