Kvikmyndaskólinn hefur útskrifað nemendur með góð tök á faginu. Hann hefur aflað sér virðingar heima og erlendis. Kennsluhættir eru líka sérstæðir, nemendum er strax kastað í djúpu laugina og sagt að taka sundtökin. Af því leiðir, að skólinn menntar nemendur sína hraðar og þéttar en hefðbundnir skólar. Faglegt gengi skólans fer í taugar kontórista ríkisins, sem vilja hafa allt hefðbundið. Þeir hafa rekið fleina í gangverk samninga um framhald skólans. Svo lítið ber samt í milli ríkis og skóla, að fáránlegt er að láta ekki samninga takast. Klúðrun samninga er fyrst og fremst verk kontórista.