Kanzlari talar ekki rósamál

Punktar

Hinn hægri sinnaði og kristilegi kanzlari Þýzkalands, Angela Merkel, talar ekki undir rós. Hún segir, að ríkisstjórn George W. Bush hafi framleitt kreppuna með því að neita að setja fjármálafyrirtækjum skorður. Með aðstoð Tony Blair í Bretlandi. “Með þrjózku dróguð þið okkur inn í kreppuna” segir hún. Margt fleira ófagurt sagði hún í ræðu sinni. Samkvæmt Spiegel sagði hún líka, að Þýzkaland taki ekki þátt í að draga fjárglæframenn að landi. Þingmaður hennar, Michael Meister, segir Bandaríkin vera að leggja drög að nýrri kreppu. Með því að draga glæframenn að landi og þjóðnýta tap þeirra.