Ef ekki verður samið við Bretland í vikunni, verður ekkert samið. Í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslunnar getur enginn pólitíkus leitað sátta við útlandið. Íslendingar eru komnir í þjóðrembugírinn. Fólk mun sætta sig við skort á lánsfé. Sætta sig við engin orkuver og enga stóriðju. Sætta sig við miklu meiri niðurskurð ríkisútgjálda. Jafnvel sætta sig við enn hærri skatta. Kjörorðið verður að standa í lappirnar, þótt allt frjósi í helvíti. Þannig mun ríkið lifa af ógnarárið 2011, þótt áfram verði skrúfað fyrir lánsfé. Gjaldeyrir verður skammtaður og Kanaríferðir bannaðar. Þjóðin fær markmið.
