Kafla vantar í kennslubækur

Punktar

Peningafræði síðustu ára nær ekki yfir núverandi ástand og enn síður yfir verðandi ástand. Þetta er góðviðrisfræði, sem dugar ekki í hamförum. Eignir eru orðnar verðlausar, einnig eignasöfn bankanna, því að þessar eignir eru óseljanlegar. Skuldirnar eru hins vegar til. Allir, sem skulda, verða að svelta, þótt þeir þykist eiga eignir á móti. Kennslubækur um peningafræði ná ekki aftur til kreppunnar miklu. Og ástandið er verra en þá. Það stafar af hnattvæðingu og frjálshyggju. Hrun dreifist hraðar og víðar en áður. Peningafræðingar skilja þetta ekki og alls ekki þeir í Fjármálaeftirlitinu.