Jól tveggja þjóða

Greinar

Enn er skammt liðið vetrar, þótt jólin byrji á morgun. Suðvestanlands hefur vart gránað í fjöll á þessum vetri. Svona geta áraskiptin verið mikil í þessu landi óstöðugrar veðráttu. En vonandi fá íbúar Suðvesturlands nýjan snjó fyrir annað kvöld, með vægu frosti um allt land, svo að allir landsmenn geti notið jólaveðurs.

Annað kvöld vonum við, að jólafriður ríki á sem flestum heimilum eftir erfiðar jólaannir. Í dag er hins vegar allt á öðrum endanum Nú eru hin veraldlegu umsvif jólanna í hámarki. Margir eiga eftir annasama nótt við jólaundirbúning og sumir hverjir verða líka störfum hlaðnir á morgun. Vonandi verða menn ekki búnir að safna svo mikilli streitu, að þeir fái ekki notið jólanna annað kvöld og á jóladag.

Ekki halda allir landsmenn eins jól. Nokkuð stór meirihluti þjóðarinnar lifir í allsnægtum og neitar sér ekki um margt á jólunum. Þetta eru þeir, sem hafa lagt hart að sér við vinnu á árinu. Þetta eru einnig hátekjumenn menntunar, ábyrgðar, áhættu eða embætta. Þetta eru ennfremur þeir, er eignazt hafa fé að arfi eða í happdrætti. Og loks eru þetta skattleysingjarnir, sem stunda holubúskap í atvinnulífinu.

Mikill hluti þessa fólks er vel að tekjum sínum og velgengni komið. Aðrir miður, eins og gengur og gerist. Glaðastir eru þó skattleysingjarnir, því að þeir hafa fengið í jólagjöf skattafrumvarp, sem hefur allt önnur áhrif en ætlazt var til í sumar, þegar reiði manna var sem mest. En allt þetta fólk mætti gjarna hugsa til hinnar þjóðarinnar í landinu, þess minnihluta sem býr við þröngan köst í miðri hringiðu velsældarinnar.

Hin þjóðin er eins konar undirþjóð, sem ekki hefur fengið að vera með í kapphlaupinu. Þar í hópi eru eftirlaunamenn margir, öryrkjar og sjúklingar. Þar eru einnig drykkjusjúklingar og auðnuleysingjar. Ennfremur eru þar margir einstæðir foreldrar, ekki sízt einstæðar mæður sem bera þunga bagga af litlum tekjum. Loks eru þar fjölmennastir margs konar láglaunamenn, sem verða að lifa af lágum töxtum og lítilli aukavinnu.

Þessi þjóð er fjölmennur minnihluti, sem á nógu erfitt með að komast af frá degi til dags, þótt kostnaði við jólahald sé ekki bætt ofan á. Hún getur ekki einu sinni slegið fyrir jólunum í bönkum, því að þeir voru fyrir löngu tæmdir handa heiðursmönnum á vegum stjórnmálaflokkanna. Hjá mörgum af þessari þjóð eru jólin tími áhyggja af fjármálum líðandi stundar og atvinnuástandi nálægrar framtíðar.

Velsæld hinnar þjóðarinnar spillir henni sýn inn í vandamál þessarar. En þann sjónarheim er unnt að opna. Og ef til vill eru jólin bezta tækifærið til að benda fólki á nauðsyn þess að brúa gjána milli þjóðanna tveggja, svo að réttlæti megi ríkja í landi þessu. Í von um það óskar Dagblaðið öllum landsmönnum gleðilegra jóla.

Jónas Kristjánsson

Dagblaðið