Jóhönnu skortir stjórnvizku

Punktar

Jóhanna Sigurðardóttir spillti stjórnarsamstarfinu strax í upphafi með eins konar bjölluati, kröfunni um aðildarumsókn að Evrópusambandinu. Hún þvældi Steingrími J. Sigfússyni inn í skrípaleik, sem gengur ekki upp. Meirihluti þjóðarinnar var þá andvígur aðild og er enn. Fyrir bragðið hafa þingmenn kvarnast úr Vinstri grænum og ríkisstjórnin er veikari en ella. Þetta er öllum ljóst. Sjálfur er ég eindreginn fylgismaður aðildar og flokkast nánast sem landráðamaður. Samt er mér ljóst, að ferli Jóhönnu gat ekki gengið upp. Það skaðar málstaðinn. Svona gerist, þegar pólitíkusa skortir stjórnvizku.