Lengi hefur verið ljóst, að fólk vill taka þátt í þjóðaratkvæðagreiðslu. Það er eitt af stóru málunum, eins og stjórnlagaþing og persónukjör. Engu máli skiptir, um hvað þjóðaratkvæðið snýst. Það snýst um þáttökuna sjálfa. Það er mikil heimska Jóhönnu og Steingríms að tala niður kosninguna á laugardaginn. Sýnir, að þau skilja ekki hugarástand fólks, enda sjálf af gamla skólanum. Fólk mun kjósa á laugardaginn um það, sem það vill kjósa um. Síðan munu álitsgjafar túlka niðurstöðuna út og suður. Jóhanna og Steingrímur virðast ekki skilja grunnþarfir fólks: Þjóðaratkvæði, stjórnlagaþing, persónukjör.
