Jens Guð og Anna Ólafsdóttir Björnsson eru að hefja nýja atkvæðaleiki á vefsvæðum sínum. Tvennt einkennir slíka leiki. Þáttakendur eru eingöngu úr þeim hópi, sem lesa vefsvæði Jens og Önnu. Velja sig þar að auki sjálfir í úrtakið. Hvort tveggja stríðir gegn grundvelli skoðanakannana eins og þær eru skilgreindar í vísindum. Hefð er fyrir því á Íslandi, að orðið skoðanakönnun sé notað um fræðilegar kannanir, sem standast aðferðafræði vísindanna. Jens og Anna eiga að kalla leiki sína atkvæðaleiki, ekki skoðanakannanir. Þau eiga ekki að nota orð, sem gefur vísindi í skyn.
