Aðeins á fávitahæli geta menn rætt í alvöru um tvíþætt löggjafarvald milli Alþingis og kjósenda. Aðeins á fávitahæli ógildir Hæstiréttur kosningar út á formgalla, þótt ekki hafi verið svindlað í þeim. Aðeins á fávitahæli spyrja sjö lagatæknar um málaferli gegn Íslandi, þótt ljóst sé, að ríki fari ekki í mál við ríki, sem hefur lofað að borga. Öll umræða á Íslandi er í skötulíki. Andstæðingar IceSave brjálast, þegar samninganefndin leyfir sér að útskýra samninga. Fjölmiðlar á borð við Mogga halda uppi umræðu á lægsta plani, sem þekkist á Vesturlöndum. Íslendingar jafnsetja meira að segja rök og rugl.